Hvað er Netmöskva

Allt um körfubolta og líka eitthvað um stuttbuxur og sjampó
júlí
21

Já sæl og blessuð. Mættur aftur hérna. Er ekki búin að vera nógu duglegur að skrifa inn á bloggið en það er búið að vera rosalega mikið að gera. Allt að verða brjálað í vinnunni hjá mér. Nóg að gera í blikkinu.

En síðan er maður byrjaður að dútla sér í gólfinu. Ég og Iddi Piddi erum búnir að vera að æfa okkur upp á síðkastið og síðasta laugardag vorum við í 2.sæti á Bm-Vallá móti upp á Hamarsvelli. Hlakka til að koma í Hólminn á Dönsku dögum og sýna Sigga Þorvalds hvernig á að spila gólf.

Síðan fórum við Sunna upp í sumarbústað hjá Pálma og Silju rétt hjá Bifröst. Það var rosalega fínt, vorum í pottinum alveg heillengi og svo á sunnudaginum fórum við Pálmi á golfvöllinn Glanna sem er þarna rétt hjá. Það var alveg helvíti gaman.

Síðan á daman 20 ára afmæli núna á miðvikudaginn.

En jæja þá segjum við það í dag.

júní
20

Jæja komiði sæl. Kominn loks aftur hérna með pistil. Allt að ske hérna þessa dagana. Ég fór í aðgerð núna 30.maí og er bara allur að koma til. Fyrsta helgin var mjög erfið. Var með kælipoka á mér alla helgina en sem betur fer var ég hjá tengdafólkinu mínu og þau voru alveg frábær. Síðan er maður byrjaður að láta þunga á löppina og síðan verður maður að byrja ða styrkja löppina. Síðan verður maður að fara að byrja að vinna auðvitað. En núna er maður búin að vera að horfa á EM á hverjum degi og síðan á næturnar er það búið að vera NBA. Mamma og Pabbi komu með Kevin Garnett bol og ég var með hann á mér alla keppnina. Boston tóku þetta auðvitað. Vonandi að Chicago komi sterkir næstu ár.

En síðan er það allt gott. Erum að leita að einhverju sumarhúsi fyrir DAnska daga í hólminum og endilega ef einhver hólmari er þarna úti og þekkir mig eitthvað og veit um eitthvað þá endilega að koma með eitthvað koment hérna á síðuna.Ef ykkur vantar einhvern góðan DJ í partý á DAnska daga þá er ég maðurinn, spurjið bara Sigga og Hlyn. En já þið látið í ykkur heyra.

En síðan er það bara búið í bili en ég verð nú að vera duglegri að koma með eitthvað slúður hérna á síðunni en já

Síðan er það nú allt þetta í köfunni hérna á landi UUUUSSSSSS

En já ég heyri í ykkur

maí
26

Já sæl og blessuð. Kominn með pistil hérna á þessum mánudegi sem er jú 26.maí á þessu herrans ári sem er 2008. Foreldrarnir farnir til Ameríku og þau hafa það bara mjög fínt held ég. Pabbi missti seig víst í einhverri verkfæraverslun þarna úti og mamma er að versla eins og vitleysingur. Halldór bró týndi töskunni sinni þegar þau voru að koma til Atlanta svo það er einhver missir þar. En nó um þau.

Föstudagur er málið. Þá er aðgerð hjá kellinum og þá verður maður rúmliggjandi. Það verður hörkufjör. En það er nú komin tími á þessa aðgerð. Búin að vera hérna með löppina hálfvirkandi og er komin tími á þetta.

Síðan er nú ekki mikið að ske. Jú hvað er ég að bulla. Hún Sunna Lind Jónsdóttir var að útskrifast um helgina. Útskrifaðist úr Fjölbrautarskólanum á Akranesi og það var fín athöfn. Síðan var það veisla hjá tengdó um dagin og svo var hööööörku júróvisjíón partý heima hjá henni Sunnu. Ég hélt nú með Frökkum(ekki út af Allan Fall) þeir voru með hööööörkulag. Síðan eru það Liverpool sem ætla að halda sig í þessum pakka að kaupa endalaust af þessum Free transfer gaurum(fyrir þá sem ekki eru kunnir á þessum talsmáta geta farið eitthvað annað). Meðan að MAnjún,Chels og Ars eru að kaupa einn stóran á hverju tímabili og nokkra fína spilara þess á milli. Liverpool eru alltaf í þessum pakka að taka einhverja Julius Agahowa kalla af Free Transfer listanum. Breyta þessum velli strax og fá 70.000 manns á leiki.

Jæja ég nenni ekki að segja meira núna en ég verð núna duglegur að skrifa.

Sjáumst hress

maí
18

Já góðan daginn hérna á þessum Sunnudegi. Koma með smá færslu með einhver tíðindi síðustu daga.

 Fór á Jet Black Joe tónleika á föstudag. Tónleikarnir byrjuðu á einhverju tríói frá Vestmannaeyjum. Þau spiluðu klassísk lög eins og Betterman með Pearl Jam og Exit Music með Radiohead. Þau voru bara nokkuð góð. Síðan byrjaði Gospelið. Ekki hef ég nú hlustað mikið á slíka tónlist og ekki ætla ég mér að byrja á því í dag. Páll Rósí kom með lög eins og'’You look so Beautiful to me'’ með Joe Cocker og einhver svona róleg og rómatísk lög sem maður hefði nú ekki haldið að maður mundi heyra á Jet tónleikum. Gospelið söng einhver 7 lög held ég. Síðan loksins kom Jet Black Joe á svið. Þeir brugðust ekki. Gunnar Bjarni var alveg sturlaður á gítarnum og síðan voru Baugsbræður á trommur og bassa. Þeir voru alveg helvíti góðir. Palli Rósí var ekki eins og hann var hérna í den og er ekki með þennan kraft eins og hann var með. Hápunktur tónleikana var svo þegar hún Sigga Guðna kom og tók ‘’Freedom'’. Það var alveg geggjað hvað hún náði að fara hátt upp. Alveg geggjuð söngkona. Reyndar kom smá bakslag á þessa tónleika vegna umgangs. Vorum á sömu röð og einhverjir fylliraaftar og var stanslaus gangur alltaf á þeim félögum. Einn þeirra endaði síðan kveldið með því að pissa undir einhvern stiga í höllinni.

Síðan fórum við bræðurnir í gólf hérna á vellinum í Borgarnesi. Fínt ástand á vellinnum og held ég að Siggi Þorvalds vallarstjóri í Hólminum geti lært ýmislegt af þessum köllum hérna í bænum.

En jæja ég hef nú ekki meira að segja í bili. Ég heyri í ykkur seinna.

maí
12

Jæja góðan daginn. McGunner hér kominn eftir ja erfiða helgi. Á föstudag var í Húsasmiðjunni svona Fagmannaveisla og frítt áfengi og með því og kallinn var auðvitað á staðnum. Kíkti svo á Böðvarsgötu 5 og fékk mér grillmat og síðan var haldið á Vinakaffi. Kominn heim um 2 og farið að lúlla. Vaknað síðan um hádegisbil á laugardegi og brunað út á skaga að kíkja á litla frænda sem er nú komin með nafn. Hann heitir Jón Þór Finnbogason og hann var alltaf sofandi þegar við fórum í heimsókn en vakanaði um leið og við fórum en jæja. Þá var það að fara í Reykjarvíkina og þar fórum við í Smáralindina og eftir það fór ég upp á hótel herbergi og lagði mig í nokkra tíma til um það bil 7 og þá var farið í partý og svo var haldið niður á Brodway og þar var síðan aðeins skálað. Fín skemmtiatriði og Skallagrímur fékk nokkur verðlaun. Flake valin besti erlendi leikmaðurinn, Axel var prúðasti leikmaðurinn og síðan fór Áskell tvisvar og tók við verðlaunum fyrir tvo stráka úr FSU. Síðan eftir matinn og skemmtiatriðinn var haldið upp á herbergi og smá partý þar og síðan var það Sálin sem spilaði. Þeir voru allt í lagi, spiluðu frekar mörg svona róleg lög en síðan komu klassarnir eins og ‘’Feita Nína'’ og ‘’Sódóma'’. Haldið síðan upp á hótel þar sem partý var. Vaknað síðan um 1 og tekið til og komum við í nesið og sofnuðum í sófanum á Böðvarsgötu 7. Þar var síðan horft á sjónvarpið til um 2 í nótt. Alveg búin eftir þessa helgi og sýnir það eldrunarmerki á sumum.

En talandi aðeins um Púlarana þá unnu þeir nú bara síðasta leikinn á móti Tottenham og það var bara nokkuð fínt. Sá nú ekki leikinn en horfði á Manjún leikinn og það var nú bara nokkuð öruggt. Óska þeim til hamingju með það. Heyrði einmitt í Steve-G í gær og það var hörkupartý hjá honum og Jenny konunni hans. Þau báðu að heilsa.

Síðan eru foreldrarnir og brósi að fara út eftir nokkra daga og það verður örugglega höööörkustuð á þeim. Og síðan er það aðgerð hjá mér núna 30.maí og það er kominn tími til að fara í þessa aðgerð. Fínt að vera bara heima og geta ekki hrreyft sig meðan EM er í sjónvarpinu.

En jæja ég ætla að láta þetta duga í bili. Ég heyri í ykkur.

maí
05

Jæja hvað segiði. Allt að verða vitlaust í körfunni hérna á íslandi.UUUSSS!!!!! Gummi Jóns farinn úr Njarðvík og kominn í Þór Akureyri og Justin Shouse farinn úr Hólminum og kominn í Stjörnuna. Það verður fróðlegt að sjá hvað fleira verður í gangi næstu vikur og mánuði.

Síðan er það lokahóf KKÍ næstu helgi maður…..Þetta verður bara gaman með Sálina að spila á hööörkuballi held ég.

Liverpool duttu nú út úr helvítis Meistaradeildinni um daginn á móti Chelsea og það var nú alveg sanngjarnt. Voru bara helvítis klaufar og vitleysingar að klára þetta ekki á heimavelli þar sem Púlararnir vöðuðu í færum en það þýðir ekki að vera að væla hérna á netmiðlum landsins. Síðan er maður kominn með hérna höörku ‘’facebook'’ síðu hérna og er að safna mér vinum. Verð að vera með fleiri vini en Pétur Már Sigurðsson en hann er með eitthvað rugl marga um 70 en ég er nú komin með 7 svo það er langt í land hjá mér að vera eins vinsæll eða eins myndarlegur eins og hann Pési:)

Síðan er nú gaman að sjá síðuna hjá henni systu en það er einmitt'’linkur'’hérna á síðunni minni. Hún var á víst einhverju ‘’promi'’ þarna út í Bandaríkjunum. Það var allt voðalega formal þarna. Pabbar stelpnana settu skóna á þær og svo voru það drengirnir sem settu eitthvað blóm á úliðinn á stelpunum.

Jæja er ekki með fleiri fréttir hérna. ‘’Dont’t Jú nó æm Lókó'’

apríl
24

Já sælir. Kominn tími á smá færslu hérna á síðuna góðu.

Keflavík unnu í kvöld íslandsmeistaratitilinn og vil ég óska þeim til hamingju með titilinn. Þeir spiluðu mjög vel í þessum leikjum sem ég sá í úrslitakeppninni. Hólmararnir voru langt frá sínu besta. Hlynur og Siggi voru ekki að spila sem best á móti Kef og Justin var ekki að gera gott mót. Samt sem áður voru Kef að spila alveg höööörkuvörn í þessari seríu.

Síðan er það leikurinn á þriðjudaginn. Liverpool-Chelsea. jahérna hér!!!! oftast hefur maður haft smá þolinmæði fyrir honum rauða í liðinu. hversu oft hefur maður bölvað þessum manni í sand og ösku og síðan bara jafnað það út eftir smá tíma. En jahérna hér!!!! Af hverju er ekki þjálfararnir að þjálfa þennan mann í að sparka í bolta með hægri!!!!! hann hefði auðveldlega sparkað í hann með hægri en nei nei!!!! Þurfti endilega að beygja sig niður og skalla tuðruna í netið. Hann náði bara ekki að lyfta hægri löppinni upp og þruma í tuðruna!!!jahérna hér!!!! þessi maður á eftir að spila út tímabilið vegna þess að Aurelío er meiddur. Endilega fyrir Liverpool að láta Ensúa, litla pjakkinn spila nokkra leiki og hvíla þennan litla rauðhærða vitleysing á bekkinn eða bara henda honum bar beint til Osló eða hvar sem hann á heima þarna í þessu landi sem kallast Noregur. Ætli hann sé frá Þrándheimum? Eyða öllum þessum pening í einhverja fáránlega klippingu leik eftir leik!!!!!jahérna hér!!!!!!Allavegana fór þetta semsagt 1-1 og erfiður leikur á Stanford Brigde í næstu viku.

En síðan er það nú lítið að frétta. Heyrði nú í litlu systu í vikunni og gaman að heyra í henni. öfunda foreldrana mína hrikalega því þau eru að fara til USA að hitta litlu og ég væri svo til í að hitta hana en ég hitti hana þegar hún kemur út úr fríhöfninni. Hún verður nú að kaupa smá Toblerone í höfninni og nokkuð af tyggigúmmíi fyrir drenginn!!!!

Nú þegar tímabilið er búið er tilhlökkun fyrir lokahóf KKÍ sem verður í næsta mánuði. Sálin að spila og það verður örugglega hööööööskustuð.

En jæja kominn tími á mig þetta kvöld. Ég bið að heilsa

apríl
20

Jæja. Hvað segiði. Mættur hérna á sunnudegi með smá pistill hérna frá Böðvarsgötunni. Lítið að frétta en samt nokkuð. Liverpool unnu nokkuð örugglega á móti Fulham, púlararnir voru með nokkuð varalið en voru samt nokkuð öruggir. Síðan fór ég í bæinn og kíkti í höllina að kíkja á Verk og Vit. Fín sýning og gaman að skoða ýmislegt sem var í boði. Hitti fullt af liði þarna og síðan fór maður að horfa á fyrsta leikinn hjá snæfell og keflavík. Hööörkuleikur þar sem Nonni hefði getað klárað leikinn undir lokin en klikkaði á skotinu. Fínt skot hjá kallinum en óheppinn. Samt held ég að Snæfell vinni á morgun og þá eigi leikur 3 eftir að vera úrslitarleikur.

Ekki meira að skrifa þetta kvöld en ég kem með eldheitar fréttir af leiknum á morgun.

apríl
15

Já segi ég og skrifa. Við fórum smá hópur úr Nesinu í hólminn. Kíktum á Fimm Fiska og þar var farið að borða. ágætis matur þar á ferð. Síðan kíktum við í húsið. Fengum bestu sæti hússins og leikurinn byrjaði. Hraðinn var rosalegur og Grindavík voru með yfirhöndina. Adam, Jamall og Pall Axel voru að spila vel en hólamaranir voru ekki alveg að spila sinn besta leik. En Siggi MAze var alltaf að skora ein og eina körfu. Þegar um 7 mín voru eftir var 18 stiga munur fyrir Grindavík og þá fór Slobodan og Siggi á kostum. Minnkuðu muninn hægt og rólega, Slobodan skoraði held ég 12 stig í röð og Siggi kom með nokkra stóra þrista. Framlenginginn var hööööörkuspennannne þar sem mað fannst hólmaranir voru alltaf einu skrefi á undan. Frábær sigur hjá þeim og ég óska þeim kærlega til hamingju með sigurinn og gaman verður að sjá hvernig leikurinn á miðvikudaginn verður, hvort ír kemur til baka eða hvort þessi ír-blaðra er sprunginn. Veit ekki hvort annnað þessara liði takist að sigra snæfell í úrslitum. Jæja ég spá þrennunni hjá hólmurum.

jæja má ekki vera að þessu, maður verður nú að hvíla sig……….. Ég heyri í ykkur!!!!

apríl
13

já góðan daginn. Kominn með smá koment fyrir daginn í dag.

 Liverpool unnu í dag Blackburn á Anfield og þar var vinur hennar Írisar hann Morten Gamst Pedersen mjög lélegur. Morten var skipt út af á 12 mínútu í senni háfleik. Stevie-G, Torres og Andryi skoruðu mörkin og Santa Cruz minnkaði munin undir lokin. Púlararnir voru að spila vel og lítur þetta nokkuð vel út fyrir framhaldið. Manchester unnu svo Arsenal í dag en Chelsea á leik á morgun.

Síðan var það leikur hjá ÍR og kef í dag og það var sigur hjá Kef. þetta verður áhugavert að sjá hvernig síðasti leikurinn verður á miðvikudag. eru íringarnir búnir á því eða halda keflvíkingarnir að þetta verður auðveldur leikur og slaka á? Síðan er það leikurinn á morgun í Hólminum. Ég er að spá í að fara á hann og sjá hvernig hann verður. Ég þori ekki að spá fyrir hvernig hann verður. Búin að vera mjög undarlegt einvígi.

Jæja má ekki vera að þessu, Danny Crane er að byrja

Heyrust